Dagur tvö í knattspyrnuskólanum.
sksiglo.is | Almennt | 15.06.2010 | 20:53 | Bergþór Morthens | Lestrar 588 | Athugasemdir ( )


Knattspyrnuskóli Grétars Rafns hélt áfram í dag af fullum krafti og góðir gestir mættu í heimsókn.
Það var engin önnur en Siglfirðingurinn Sandra Sigurðardóttir landsliðsmarkvörður Íslands í knattspyrnu sem mætti á svæðið ásamt Þorláki Árnasyni.
Þorlákur er yfirþjálfari allra barna- og unglingaflokka Stjörnunnar úr Garðabæ og hefur auk þess starfað mikið fyrir KSÍ.
Sandra og Þorlákur tóku vel á því með krökkunum og ekkert gefið eftir.
Krafturinn og áræðnin skein úr andlitum þátttakenda í knattspyrnuskólanum og ljóst er að þau eru að fá mikla og góða þjálfun.
Fleiri ljósmyndir frá knattspyrnuskólanum koma síðar.




Athugasemdir