Davíđ ćtlar í pólitík verđi honum ýtt út
visir.is, 04. des. 2008 03:13 | Fréttir á landsvísu | 04.12.2008 | 07:32 | | Lestrar 137 | Athugasemdir ( )
Davíð Oddsson seðlabankastjóri ætlar að sitja í nokkur ár í viðbót sem seðlabankastjóri og hætta svo á eigin
forsendum með sama hætti og þegar hann hætti sem forsætisráðherra. Ef hann verður neyddur til þess að segja af sér ætlar hann að
fara aftur í pólitík.
Ég er bara 60 ára og fullkomlega heilbrigður svo að ég hef hugsað mér að sitja í nokkur ár í viðbót og draga mig svo
í hlé af fúsum og frjálsum vilja eins og ég gerði sem forsætisráðherra, segir Davíð í viðtali við Fokus,
fylgiblað danska blaðsins Fyens Stiftstidende, sem á sunnudag var helgað þróuninni á Íslandi.
„Ef ég verð neyddur til að segja af mér lítur málið allt öðruvísi út. Þá ætla ég að snúa aftur í pólitík," segir hann. Bent A. Koch, fyrrverandi aðalritstjóri Fyens Stiftstidende, sem tók viðtalið, bætir við: „Enginn þarf að vera í vafa um að Davíð er tilbúinn í baráttu."
Viðtalið við Davíð birtist undir fyrirsögninni „Blóraböggull fólksins: Ég varaði við en enginn vildi hlusta". Í undirfyrirsögn segir: „Maðurinn, sem Íslendingarnir telja að beri alla sökina, hættir ekki af fúsum og frjálsum vilja."
Í viðtalinu er Davíð spurður að því hvernig það sé að vera sá maður sem mest sé gagnrýndur á Íslandi. „Það er auðvitað ekki skemmtilegt að vera skammaður. En ég hef reynt það áður og ég hef hreina samvisku," svarar Davíð og kveðst skilja vel að fólk finni fyrir reiði gagnvart stjórnmálamönnum og kerfinu öllu. Hann segist skilja að „ég sem hef tekið þátt í að stjórna í svo mörg ár og sit nú í Seðlabankanum, sé gerður að skotskífu, táknmynd allra þeirra sem fólk telur að hafi svikið það," segir hann. Davíð segist hafa varað við þróuninni allan tímann en enginn hafi viljað hlusta á viðvaranir. Hann segir að fjölmiðlar á Íslandi séu ekki sjálfstæðir og frjálsir. Enginn geti neitað því að hann hafi verið mjög gagnrýninn í garð nýju fjárfestanna. Þeir hafi fengið stöðugt meiri völd og meðal annars viljað ráða yfir fjölmiðlunum. Geir H. Haarde forsætisráðherra vildi ekki tjá sig um orð Davíðs í Fyens Stiftstidende þar sem hann var ekki búinn að sjá blaðið. 4,7 prósent sögðust myndu styðja Davíð í sérframboði, samkvæmt könnun Fréttablaðsins sem gerð var 22. nóvember. 7,8 prósent sögðust myndu styðja Sjálfstæðisflokkinn ef hann væri leiddur af Davíð. Rúmlega 95 prósent tóku afstöðu til spurninganna.

Athugasemdir