Dómkórinn
sksiglo.is | Aflafréttir | 21.05.2011 | 08:27 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 52 | Athugasemdir ( )
Hér er textinn endurskoðaður – þessi skal birtast:
Boðið á tónleika
Dómkórinn í Reykjavík og Síldarminjasafnið bjóða íbúm Fjallabyggðar á tónleika í Bátahúsinu kl. 14:00 á sunnudag, 22. maí. Kórinn verður með tónleika á Dalvík á laugardag og á heimleið kemur fólkið við á Siglufirði, skoðar safnið og launin eru fríir tónleikar fyrir Fjallabyggðinga. Sami háttur var hafður þegar Kór Norðfjarðarkirkju kom í heimsókn í apríl, þá bauð Síldarminjasafnið til tónleika sem voru mjög skemmtilegir og vel sóttir. Á efnisskrá Dómkórsins eru íslensk þjóðlög og enskir madrígalar. Stjórnandi er Kári Þormar
Athugasemdir