Eins dauði ...

Eins dauði ... Refur lék lausum hala um æðarvarp við flugvöllinn aðfararnótt mánudags. Þeir sem vernda varpland hundruð fugla af mörgum tegundum bjóða

Fréttir

Eins dauði ...

Rebbi og kollan
Rebbi og kollan
Refur lék lausum hala um æðarvarp við flugvöllinn aðfararnótt mánudags. Þeir sem vernda varpland hundruð fugla af mörgum tegundum bjóða rebba ekki velkominn og svo fór að eftir að hafa sundrað allmörgum hreiðrum skokkaði hann götuna neðan af Granda með nýveidda kollu í kjaftinum - þá kvað við hvellur og skolli lá í valnum.


Þau voru lögð hlið við hlið, kollan og rebbinn, þar sem þau áttu samleið síðustu mínúturnar. Þegar morgnaði kom í ljós að svartur hrafn hafði komist í feitt og ekki var annað eftir af fuglinum en beinin og blóðugur hamur. En krummi og varpeigandinn voru sáttir við sinn hlut, því eins dauði er annars brauð eins og þar stendur.  -ök

Athugasemdir

23.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst