Ekkert ferðaveður í kvöld
Stórhríð og 19 metrar á sekúndu á Siglufjarðarvegi og Ólafsfjarðarmúli lokaður. Daglegt brauð orðið þennan veturinn en frábært veður framundan.
Íbúar Fjallabyggðar eru orðnir vanir því að vegirnir kringum bæjarfélagið séu lokaðir en mikið hefur snjóað undanfarnar klukkustundir og fylgir því mikill vindur.
Vindurinn á þó að detta niður í kvöld og draga úr úrkomu fyrir hádegi fyrir ha´degi á morgun en veðurútlit fram yfir helgi er síðan eins og best verður á kosið. Hægur vindur, úrkomulaust og hiti rétt um frostmark. Stefnir því í frábæra skíðahelgi, helgina fyrir páska.
Athugasemdir