Kristinn og Tryggvi

Kristinn og Tryggvi Þessir heiðursmenn eru báðir látnir. Til vinstri á myndinni er Kristinn Möller faðir Ómars Möller. Kristinn var alltaf kallaður Bassi

Fréttir

Kristinn og Tryggvi

Þessir heiðursmenn eru báðir látnir. Til vinstri á myndinni er Kristinn Möller faðir Ómars Möller. Kristinn var alltaf kallaður Bassi Möller. Til hægri á mynd er Tryggvi Flóvents. Þeir Kristinn og Tryggvi unnu lengi í Hraðfrystistöð Vestmannaeyja sem síðar varð Ísfélagið. Kristinn og Tryggvi voru miklir vinir og unnu í mörg ár hjá Hraðfrystistöðinni.
Kristinn var verkstjóri við síldarsöltun hjá félaginu. Einn stjórnenda Ísfélagsins lét hafa eftir sér að þeir Kristinn og Tryggvi hafi verið Ísfélaginu mikils virði því þeir kunnu bókstaflega allt sem viðkom síldarverkun.
Á þessum árum sem þeir Kristinn og Tryggvi voru í Eyjum voru fleiri siglfirskir unglingar en þeir sem myndir hafa verið að birtast af. Til dæmsi Björn Sveinsson, Leó R. Óla, Jón Oddsson sem nú er látinn, sonur Svövu Aðalsteins og Odds Jónssonar frá Siglunesi. Rögnvaldur Guðni Jóhannsson sem er látinn og var sonur Ernu Rósmundar og Jóhanns Rögnvaldssonar. Svava Gunnars og margir fleiri.
Haft var eftir Kristni Möller að allt þetta unga fólk sem kom frá Siglufirði hafi verið afburða starfskraftar sem tekið var eftir.

Athugasemdir

22.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst