Siglufjörður miðstöð fyrir þjóðdansa og þjóðlagamúsík

Siglufjörður miðstöð fyrir þjóðdansa og þjóðlagamúsík Norðurþjóðaverkefnið – North Folk Partnership undir forystu Fjallabyggðar og dr. Guðrúnar

Fréttir

Siglufjörður miðstöð fyrir þjóðdansa og þjóðlagamúsík

Guðrún Ingimundardóttir fyrir framan Þjóðlagasetrið
Guðrún Ingimundardóttir fyrir framan Þjóðlagasetrið
Norðurþjóðaverkefnið – North Folk Partnership undir forystu Fjallabyggðar og dr. Guðrúnar Ingimundardóttur hjá Þjóðlagasetri sr. Bjarna Þorsteinssonar.
Markmið verkefnisins er að þróa arðbæra atvinnugrein sem byggir á varðveislu, rannsóknum og kynningu á þjóðdönsum og þjóðtónlist, og opna veglega sýningarsali helgaða þjóðtónlist og þjóðdönsum landanna við norðanvert Atlantshaf.
Einnig að  byggja upp fjölþjóðlega akademíu sem kennir þjóðtónlist og þjóðdansa í menningarsögulegu samhengi,  koma á fót sameiginlegum gagnagrunni og halda veglega þjóðlagahátíð allra landanna. Forsaga þessa verkefnis er sú að Guðrún Ingimundardóttir, betur þekkt sem Rúna kom að máli við Gunnstein Ólafsson og vildi gera meira úr hlutverki íslenskrar þjóðlagatónlistar. Gunnsteinn ræður hana því til starfa til að útfæra hugmynd um stafrænan tónlistargagnagrunn í netvænu umhverfi. Rúna hófst þá þegar handa við að útfæra verkefnið og finna samstarfsaðila á meðal  þjóða við norðanvert Atlantshaf.  Eftir mörg símtöl og bréfaskriftir, fór Rúna á námskeið með aðilum Norðurslóðaáætlunar Evrópusambandsins (NPP) í Kaupmannahöfn  til að undirbúa umsókn um forstyrk fyrir Norðurþjóðaverkefnið.  Alls eru það sjö þjóðir sem koma að verkefninu auk Íslands, en það eru Finnar, Norðmenn, Svíar, Grænlendingar, Færeyingar, Skotar og Írar.  Þar sem Þjóðlagasetrið var of lítil eining til að halda slíku verkefni uppi leitaði Rúna til Fjallabyggðar um að leiða verkefnið. Þeir tóku vel í hugmyndina og úr var að Ólafur Þór Ólafsson fyrir hönd Fjallabyggðar varð ábyrgðarmaður fyrir NPP styrkinn. Því næsta var sótt um  forstyrk sem þau fengu og stendur undir 60% af heildarkostnaði. Einnig var sótt um styrk til Norrænumenningargáttarinnar sem hún veitti. Nú þegar styrkirnir voru komnir í hús hófst Norðurþjóðaverkefnið formlega þann 1. júní síðastliðinn og eru Fjallabyggð og dr. Guðrún Ingimundardóttir leiðandi aðilar forverkefnisins.
 

Hver er dr. Guðrún Ingimundardóttir?
Rúna er verðandi Siglfirðingur en fædd og uppalin á Húsavík. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1983 og BM gráðu í tónfræði frá Tónlistaskólanum í Reykjavík 1987. Síðan lá leiðin til Bandaríkjanna þar sem hún lagði stund á tónsmíðar og tónfræði, við Mills Collage í Kaliforníu og Arizona háskóla, þaðan sem hún lauk mastersprófi í maí 1990. Rúna var starfsmannastjóri hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands 1992-1997. Kenndi tónlist og vann við Listahátíð í Reykjavík fram til ársins 2001 þegar hún var ráðin starfsmannastjóri hjá Varnarliðinu. Árið 2005 fluttist Rúna aftur til Tucson Arizona og fór í doktorsnám í tónsmíðum við Arizona Háskóla þaðan sem hún útskrifaðist í vor. Í Sumar var Rúna starfsmaður Þjóðlagaseturs og  framkvæmdastjóri þjóðlagahátíðar.  Hún mun starfa áfram á vegum þjóðlagaseturs þar sem hún hefur umsjón með Norðurþjóðaverkefninu auk þess að kenna við Tónskólann hér bæ. Rúna á tvo syni, Guðna og Leif. Guðni sem er 19 ára er við nám í mannfræði við  Northern Arizona University í Flagstaff en Leifur er að ljúka Garðaskóla í Garðabæ.



Rúna fór nú í byrjun ágúst  til Harnosand í  Svíþjóð og hitti hinar samstarfsþjóðirnar á allsherjarfundi. Fulltrúar allra þjóða mættu nema Grænlands. Verkefnið var rætt og verkaskipting ákveðin. Verkefnið skiptist í fjóra þætti; Norðurþjóðasetur, Norðurþjóðahátíð, Norðurþjóðakademíu og Norðurþjóðanet.
Forverkefninu líkur í mars á næsta ári með því að sótt verður um styrk til NPP fyrir aðalverkefnið til þriggja ára. Útlit er fyrir að Svíar leiði aðalverkefnið en Rúna verði verkefnisstjóri, Finnar og Írar hafi umsjón með gagnagrunni, heimasíðu, útgáfu og sölu á efni tengdu þjóðdönsum og tónlist landanna, Norðmenn og Íslendingar sjái um Akademíuna og að Norrænuhúsið í Færeyjum sjái um að skipuleggja farandtónleika, þar sem tónlistarfólk ferðast milli landanna, kynni tónlist sína og dansa, haldi tónleika og danssýningar. Draumurinn er sá að hér á Siglufirði verði öflug akademía þar sem dansarar og tónlistarfólk allstaðar að úr heiminum komi saman og kynnist íslenskri þjóðtónlist og dansmenningu.



Athugasemdir

25.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst