Draumurinn verður að veruleika 30. september 2010
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 02.10.2009 | 07:00 | | Lestrar 724 | Athugasemdir ( )
Héðinsfjarðargöng eru liður í að bæta samgöngur, auka umferðaröryggi og tengja Fjallabyggð við Eyjafjarðarsvæðið og styrkja þannig byggð á Svæðinu.
Einnig mun tilurð ganganna styrkja Fjallabyggð sem eina heild og auðvelda hagræðingu í stjórnsýslunni, enda voru göngin forsenda fyrir sameiningu Siglufjarðar og Ólafsfjarðar. Ekki má gleyma ferðamannaiðnaðinum sem á eflaust eftir að blómstra, þegar Siglufjörður er lengur ekki botnlangi, heldur hluti af norðurhringnum. Vafalítið á Héðinsfjörður eftir að draga að ferðamenn enda hrein náttúruparadís, með sitt gjöfula veiðisvæði og berjaland. Jarðgöngin verða tvíbreið, um 3, 7 km löng milli Siglufjarðar og Héðinsfjarðar og 6,9 km löng milli Héðinsfjarðar og Ólafsfjarðar. Með vegskálum verður heildarlengd ganganna því rúmlega 11 km. Göngin stytta leiðina milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar úr 62 km í um 15 km miðað við akstur um Lágheiði og úr 234 km í 15 miðað við akstur um Öxnadalsheiði. Yfir vetrartímann þurfa Siglfirðingar að keyra lengri leiðina um Öxnadalsheið, þar sem Lágheiðin er ófær stóran hluta vetrarins, þannig að styttingin er mikil.
Myndin var tekin á leið upp á Lágheiði um síðustu helgi. Septembermánuður og krapi á veginum.
Draumurinn um Héðinsfjarðargöng hófst árið 1990 þegar frumkvöðulinn Sverrir Sveinsson, Framsóknarflokki, lagði fram þingsályktunartillögu um jarðgöng milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar í framhaldi af opnun jarðganga um Ólafsfjarðarmúla. Meðflutningsmenn Sverris að tillögunni voru Halldór Blöndal, Jón Sæmundur Sigurjónsson, Jóhannes Geir Sigurgeirsson, Ragnar Arnalds, Árni Gunnarsson og Pálmi Jónsson.

Þessi mynd var tekin í Héðinsfjarðargöngum(austari hluta) síðastliðinn föstudag. Eins og sést þá er mikill vatnsflaumur í göngunum og myndarlegur foss fellur niður á miðjan veginn.
Göngin hafa verið í byggingu frá árinu 2006 og í upphafi voru áætluð verklok síðari hluta árs 2009. Síðan var verklokum frestað fram í júlí 2010. Eins og fram kom á fundi Samfylkingarinnar á Allanum fyrr í vikunni þá er búið að seinka opnun Héðinsfjarðarganga enn frekar, eða fram til 30. september 2010, en eftir þann tíma verður beitt dagsektum. Hinsvegar verður reynt að ljúka verkinu fyrr ef hægt er. Endursamið var við bæði Metrostav og Háfell um að vinna áfram að verkinu.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir sem teknar voru í göngunum um síðustu helgi og á leiðinni frá Siglufirði til Ólafsfjarðar. Myndir HÉR . Tengd frétt: Fundur Samfylkingarinnar á Allanum

Mynd tekin í Héðinsfirði. Vegskálinn að vestan.

Athugasemdir