Krimmaæði á Siglufirði

Krimmaæði á Siglufirði Bókasafnið á Siglufirði er á jarðhæð í Ráðhúsi Siglufjarðar. Framkvæmdir hafa staðið yfir utanhúss frá því í byrjun ágúst, nú er

Fréttir

Krimmaæði á Siglufirði

Ingibjörg Ásgeirsdóttir
Ingibjörg Ásgeirsdóttir
Bókasafnið á Siglufirði er á jarðhæð í Ráðhúsi Siglufjarðar. Framkvæmdir hafa staðið yfir utanhúss frá því í byrjun ágúst, nú er þeim lokið. Enn á eftir að koma öllu í rétt horf innandyra og ljóst er að það á eftir að taka einhvern tíma þar til bókasafnið verður „spick and span“ með örðum orðum tandurhreint og fín.


Framkvæmdum að utan er nú lokið.

Ingibjörg Ásgeirsdóttir forstöðumaður bókasafnsins tók á móti fréttamanni siglo.is í gær. Hún flutti frá Reykjavík til Siglufjarðar árið 1997 og hefur starfað  á bókasafninu síðan þá. Hún upplýsti að vinsælustu bækurnar í dag eru sakamálasögur, þannig að krimmaæði virðist vera á Siglufirði. Vinsælustu höfundarnir eru Arnaldur Indriðason og Sænsku höfundarnir Stieg Larsson og Camilla Lackberg. Stieg Larsson samdi bókina Karlar sem hata konur, sem hefur farið sigurför um heiminn.  Hjá ungu kynslóðinni eru Twilight og Eragon bækurnar vinsælastar.


Stólarnir eru upprunalegir og hluti af safnkostinum.


Eins og sést á þessari mynd þá á eftir að klára framkvæmdir innandyra, og auðvitað þrífa rykið sem smýgur út um allt. Það er því ljóst að mikið verk er fyrir höndum að koma öllu í samt lag aftur.
 
Ísland hefur verið kallað Sögueyjan af öðrum þjóðum sökum þeirrar virðingar sem íslendingar njóta vegna sagnaafreka, enda er ísland mikil bókaþjóð og íslendingar rituðu bækur á móðurmáli sínu á 13. öld þegar aðrar þjóðir rituðu sögu sína á latínu. Þann 11. febrúar 1911 var samþykkt á miðsvetrarfunda að koma á fót lestrarfélagi og bókasafni, og jafnvel lestrarsal sem væri opinn 2-3 tíma á dag að vetrinum. Þrír menn voru kosnir til að hrinda málinu áfram, sr. Bjarni Þorsteinsson, Jón Guðmundsson verslunarstjóri og Sigurður H. Sigurðsson. Þetta var upphaf Bókasafns Siglufjarðar. Bókasafnið var í Barnaskólahúsinu fyrstu árin eða 1916 til 1922. Eftir það var það á hinum ýmsu stöðum þar sem pláss leyfði, þar til núverandi húsnæði var byggt. Í árslok 1959 fékkst loforð fyrir ríkisstyrk fyrir bókasafnsbyggingu. Hafist var handa við framkvæmdirnar í ágúst 1961. Byggingarmeistari var ráðinn Þórarinn Vilbergsson. Sigurjón Sveinsson arkitekt teiknaði húsið og gaf alla sína vinnu. Þann 14. nóvember 1964 var svo bókasafnið vígt á neðstu hæð Ráðhússins. Tvær efri hæðir Ráðhússins voru teknar í notkun 1981, hver hæð er 360 fm að flatarmáli. Fleiri myndir HÉR





Athugasemdir

25.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst