Enn og aftur tónlistarveisla
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 23.11.2009 | 12:00 | | Lestrar 508 | Athugasemdir ( )
Það er óhætt að segja að margir stórtónleikar hafa verið haldnir hér í Siglufirði að undanförnu. Papar með þá Gylfa Ægis og Bubba, Hjálmar, Gospel og nú síðast Mugison. Það voru ekki neinir smá karlar sem tróðu upp á Allanum síðast liðið föstudagskvöld.
Mugison og Björgvin Gíslason fluttu lög Mugison á svo snilldarlegan hátt að nokkrir hjúkrunarfræðingar hér í bæ máttu vart mæla fyrir aðdáun. Það var augljóst að þarna voru vanir menn á ferð og skemmtilegar sögur milli laga gerðu kvöldið enn skemmtilegra. Nú er bara að sjá hvað kemur næst uppúr tónleikahattinum.

Athugasemdir