ESB íhugar að taka upp íslenskættað kvótakerfi

ESB íhugar að taka upp íslenskættað kvótakerfi Samkvæmt drögum að nýrri skýrslu Evrópubandalagsins (ESB) um fiskveiðistefnu sambandsins er meðal annars

Fréttir

ESB íhugar að taka upp íslenskættað kvótakerfi

Samkvæmt drögum að nýrri skýrslu Evrópubandalagsins (ESB) um fiskveiðistefnu sambandsins er meðal annars velt upp þeim möguleika að ESB taki upp kvótakerfi að íslenskri fyrirmynd. Fjallað er um málið í Financial Times. Þar segir að miklar væntingar séu um að stjórn ESB muni leggja til umfangsmikinn niðurskurð á stærð evrópska fiskiskipaflotans. Þetta á að vera grunnurinn að því að breyta um stefnu þar sem öllum er ljóst að núverandi stefna hefur alls ekki komið í veg fyrir ofveiði nær allra fiskistofna við Evrópu.

Samhliða þessu er lagt til að lönd og héruð innan ESB fái mun meira að segja um fiskveiðistjórnunina á eigin heimamiðum en nú er.

„Ein lausnin sem lögð er til væri að herða tökin á hinum frjálsa markaði og setja upp kerfi með framseljanlegum kvótum, kerfi sem þegar er til staðar á Íslandi," segir í Financial Times.

Samkvæmt skýrsludrögunum er ofveiði vandamál hjá 88% fiskistofna við Evrópu og ef ekkert verður að gert er hætta á hruni í útgerð og fiskvinnslu ESB.


Athugasemdir

23.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst