Eyfirski safnadagurinn
Sigurhæðir. Kl. 15 verður fallað um Matthías og tónlistina í lífi hans. Boðið upp á kaffi og kleinur.
Síldarminjasafn Íslands. Gömlu síldarlögin; harmonikuleikur og söngur.
Ljóðasetur Íslands á Siglufirði. Ljóðaupplestur og trúbador tekur lagið.
Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar á Siglufirði: Kvæðamenn koma fram kl. 14, 15 og 16.
Byggðasafnið Hvoll á Dalvík. Kl. 14 Kristjana Arngrímsdóttir syngur nokkur vísna- og þjóðlög.
Hús Hákarla Jörundar í Hrísey. Þar óma íslensk og erlend sönglög, sungin af Hreini Pálssyni frá Hrísey. Einnig verður opið í Holti.
Smámunasafnið, Sólgarði Eyja_arðarsveit. Reynir Schiöth spilar létt lög.
Gamli bærinn í Laufás. Kl. 14 Nemendur frá Tónlistarskóla Eyja_arðar spila á fiðlur fyrir gesti. Hljóðfærasýning og munnhörpuleikur.
Leikfangasýningin Friðbjarnarhúsi. Leikföng frá liðinni öld, þ.á.m. hljóðfæri. Barnalög spiluð.
Nonnahús. Kl. 15 Farandleikarinn Karl Hallgrímsson spilar og syngur. Kanntu að spila á púkaflautu?
Minjasafnið á Akureyri. Kl. 13:15 Helgi Þórsson segir frá langspilum og gefur tóninn. Sýning á hljóðfærum og hljóðgjafagripum. Kl. 14 Farandleikarinn Karl Hallgrímsson spilar og syngur í Minjasafninu.
Davíðshús. Kl. 16 Farandleikarinn Karl Hallgrímsson spilar og syngur. Hvað eru mörg hljóðfæri í húsinu? Lék Davíð á eitthvert þeirra? Búðu til ljóð með orðum úr ljóðum Davíðs.
Amtsbókasafnið. Ókeypis útlán á allri tónlist, og dans- og söngvamyndum. Tónlistarbókum stillt upp. Afgreiðslutími Amtsbókasafnsins verður kl. 11-16 þennan dag.
Útgerðarminjasafnið á Grenivík. Boðið upp á harðfisk og rifna hausa undir ómi sjómannalaga.
Friðland fuglanna, Húsabakka í Svarfaðardal
Náttúrugripasafnið í Ólafsfirði
Sjónlistamiðstöðin á Akureyri
Flugsafn Íslands á Akureyri
Iðnaðarsafnið á Akureyri
Söngur, Hljóðfæraleikur, Vísnasöngur, Rímnakveðskapur, Ljóðasöngur, Gítarspil
Texti: Heimasíða Fjallabyggðar
Mynd: GJS
Athugasemdir