Eyfirski safnadagurinn

Eyfirski safnadagurinn Á Síldarminjasafninu verður líkt og á öðrum söfnum á Eyjafjarðarsvæðinu einblínt á tónlist á morgun, laugardaginn 5. maí.Dagskráin

Fréttir

Eyfirski safnadagurinn

Á Síldarminjasafninu verður líkt og á öðrum söfnum á Eyjafjarðarsvæðinu einblínt á tónlist á morgun, laugardaginn 5. maí.

Dagskráin fer að mestu leyti fram í Gránu, en tónlist frá síldarárunum mun að sjálfsögðu óma í öllum safnhúsunum þremur.

Dagskrá Síldarminjasafnsins:
Klukkan 14:00 – Harmonikkuleikur.
Klukkan 15:00 – Síldargengið syngur nokkur vel valin lög.
Klukkan 16:00 – Siglfirsk grunnskólabörn kveða örnefnavísur Páls Helgasonar.

Á Þjóðlagasetrinu koma fram kvæðamenn og Tóti býður upp á ljóðalestur og söng á Ljóðasetrinu.

Starfsfólk Síldarminjasafnsins hvetur alla bæjarbúa til að taka þátt í Eyfirska safnadeginum og heimsækja söfnin! Opið frá 13:00 – 17:00.

Annar bekkur Grunnskólans á leið í Gránu á söngæfingu fyrir Eyfirska safnadaginn.

Myndir frá því í morgun.









Sungið í Gránu

Heimasíða: http://sild.is/is/news/eyfirski_safnadagurinn/

Myndir: GJS

Athugasemdir

23.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst