Fagmenntaður fjallaleiðsögumaður
sksiglo.is | Almennt | 05.12.2012 | 06:00 | Gunnar Smári Helgason | Lestrar 479 | Athugasemdir ( )
Jökull Bergmann, ættaður frá Klængshóli í Skíðadal, er með alþjóðlega gráðu í fjallaleiðsögn og ferðast víða um heim sem fjallaleiðsögumaður.
Hann er líka maðurinn á bak við fyrirtækið Arctic Heli Skiing, sem starfar í þyrluskíðamennsku á Tröllaskaga og víðar.
Þá nota menn þyrlu til að komast upp í fjöllin, og renna sér svo niður fjallshlíðarnar, oft mjög tignarlegar.
Fagmenntaðir fjallaleiðsögumenn eru auk þess að vera leiðsögumenn og fjallagarpar, með mikla menntun í allri skyndihjálp og öðru sem varðar viðbrögð við óhappi. Allt sem gert er, svo sem ferða- og öryggisáætlanir er unnið eftir ýtrustu kröfum.
Jökull leit við á Siglufirði og við Finnur Yngvi fengum viðtal við hann sem verður birt í heild sinni hér fljótlega.
Aðspurður um skíðasvæðið á Siglufirði sagði Jökull:
"Skíðasvæðið hér er stórkostlegt, í raun er ekkert annað svæði á Íslandi sem hefur allt sem þetta svæði hefur hvað varðar snjóalög og landslag, tækifærin eru óendanleg."

Jökull Bergmann - siglo.is/GSH

Athugasemdir