Fegrun umhverfis við smábátabryggjuna

Fegrun umhverfis við smábátabryggjuna Fyrir tveimur vikum lauk Rauðka við að gróðursetja Viðju umhverfis húsbílastæði sitt við smábátahöfnina á

Fréttir

Fegrun umhverfis við smábátabryggjuna

Valur Hilmarsson aðstoðar Rauðku. Ljósmyndari; Hörður Júlíusson
Valur Hilmarsson aðstoðar Rauðku. Ljósmyndari; Hörður Júlíusson

Fyrir tveimur vikum lauk Rauðka við að gróðursetja Viðju umhverfis húsbílastæði sitt við smábátahöfnina á Siglufirði, en nú hefur fyrirtækið hafist handa við að hlaða grjótvegg umhverfis svæðið.

 

Undir dyggri leiðsögn Vals, garðyrkjustjóra Fjallabyggðar, prýða nú starfsmenn Rauðku hafnarsvæðið með grjótvegg sem umlykur húsbílastæði fyrirtækisins. Stefnt er á að hleðslu veggsins ljúki í vikunni og er það einn liður fyrirtækisins í að fegra umhverfið fyrir verslunarmannahelgina.

Auk hleðslu veggjarins hefur fyrirtækið nú hafist handa við að reisa stillansa og lekta Danna (bláa húsið) og mun í beinu framhaldi ráðast í að skipta um þak á húsinu og klæða það að utan. Á næstu vikum munu Siglfirðingar því verða varir við miklar breytingar á húsinu.



Athugasemdir

21.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst