Félag forstöðumanna sjúkrahúsa telur vinnubrögð heilbrigðisráðuneytis óvönduð
Aðalfundur félags forstöðumanna sjúkrahúsa var haldinn á Siglufirði þann 22. október 2010 og ályktaði eftirfarandi vegna fyrirhugaðs niðurskurðar í heilbrigðiskerfinu í frumvarpi til fjárlaga ársins 2011.
Fundurinn átelur harðlega óvönduð vinnubrögð heilbrigðisráðuneytisins við gerð frumvarps til fjárlaga ársins 2011. Lagðar eru til breytingar á heilbrigðiskerfinu til frambúðar án nokkurs samráðs við stjórnendur, fagfólk og hagsmunaaðila. Tillögur þessar eru lítt rökstuddar og til þess fallnar að skerða verulega þjónustu án þess að sýnt sé fram á að tilætluðum sparnaði verði náð. Fundurinn telur ekki hægt að una við slík vinnubrögð og skorar á heilbrigðisráðherra og alþingismenn að draga þessi áform til baka. Fundurinn hvetur ráðherra til að setjast að borði með stjórnendum, fagfólki heilbrigðisstofnana og fulltrúum sveitarstjórna og ræða raunhæfar lausnir til framtíðar fyrir þá sem þurfa á heilbrigðisþjónustunni að halda, hvar á landinu sem þeir búa.




Athugasemdir