Ferðafélagsganga á Siglunes.
sksiglo.is | Almennt | 02.08.2011 | 09:30 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 438 | Athugasemdir ( )
Um 25. manns tóku þátt í Ferðafélagsgöngu á Siglunes á laugardaginn 30 júlí. Haldið var af stað frá flugvellinum á Ráeyri og gengið um rústir
síldarverksmiðju Evangers sem eyðilagðist í
snjóflóði úr Skollaskál 1919.
Þaðan var gengið yfir Staðarhól litlu norðar og sjást þar tóftir samnefnds bæjar. Um Staðarhólsströndina var gengið eftir fjárgötum í hlíðarrótum. Upp af Selvíkurvita tók við Kambalágar og þar fyrir ofar opnaðist Kálfsdalur með litlu stöðuvatni.
Áfram var haldið upp dalinn skáhallt til Kálfsskarðs í suðaustri. Í suðvestri blasti við bakhliðin á tveimur einkennisfjöllum Siglufjarðar, Hestskarðshnjúki og Staðarhólshnjúki en utar og minni er Hinrikshnjúkur. Af skarðinu var greið leið niður í fremstu drög Nesdals.
Nú tók við langur gangur niður að sjó þar sem Reyðará liðast í ótal bugðum og fylgir Hestfjall okkur alla leið á hægri hönd.
Myndir með þessari frátt eru frá SK.

GJS.

Athugasemdir