Fimleikahringurinn heimsækir Fjallabyggð

Fimleikahringurinn heimsækir Fjallabyggð Fimleikahringurinn mun heimsækja Fjallabyggð í næstu viku. Markmið Fimleikahringsins er að

Fréttir

Fimleikahringurinn heimsækir Fjallabyggð

Hlökkum til að sjá ykkur
Hlökkum til að sjá ykkur

Fimleikahringurinn mun heimsækja Fjallabyggð í næstu viku. Markmið Fimleikahringsins er að kynna fimleikaíþróttina fyrir landsbyggðinni og auglýsa keppni í fimleikum á Unglingalandsmóti UMFÍ sem fram fer á Egilstöðum um Verslunarmannahelgina.

Að fimleikahringnum standa Evrópumeistararnir í hópfimleikum frá því síðasta haust. Fimleikahringurinn mun halda sýningar og fimleikanámskeið fyrir alla krakka sem hafa áhuga sem hér segir:

Þriðjudaginn 19. Júlí á Ólafsfirði 16:00-18:00 í íþróttahúsinu Ólafsfirði.

Miðvikudaginn 20. Júlí á Siglufirði 16:00-18:00 í íþróttahúsinu Siglufirði.

Aðgangur á sýningarnar er öllum frjáls.  Kostnaður við þátttöku í námskeiði er 500 kr. og greiðist á staðnum.

Við hvetjum alla krakka og foreldra til að koma og sjá Evrópumeistarana okkar sýna listir sýnar og taka í framhaldinu þátt í skemmtilegu námskeiði þar sem grunnæfingar í fimleikum verða kenndar af meisturunum sjálfum.


Texti og mynd: Aðsent

 

 

 


Athugasemdir

08.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst