Fjölgun starfa hjá Sparisjóði Siglufjarðar
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 28.09.2009 | 10:20 | | Lestrar 732 | Athugasemdir ( )
Sparisjóður Siglufjarðar hefur selt eignarhlut sinn í Veitu til Momentum. Hluti samningsins er samkomulag um flutning þriggja starfa í úthringiver á Siglufirði, samningurinn er til 6 ára. Ef umsvif Momentum aukast má búast við enn frekari fjölgun starfa á Siglufirði.Þegar er búið að ráða forstöðumann yfir þessari vinnslu og það er Guðný Kristinsdóttir sem mun flytja til Siglufjarðar um miðjan október ásamt eiginmanni sínum Guðmundi Eggertssyni og tveimur börnum á leikskólaaldri.
Siglo.is fagnar þessu framtaki sparisjóðsins, greinilegt er að einkaaðilar sjá kosti þess að hafa starfsemi utan höfuðborgarsvæðisins á meðan hið opinbera beitir niðurskurðarhnífnum á opinber störf sérstaklega úti á landi.

Athugasemdir