Fjölskyldudagur Lions – sumardagurinn fyrsti

Fjölskyldudagur Lions – sumardagurinn fyrsti Mikil gleði var hjá Lionsmönnum, fjölskyldum þeirra og vinum á sumardaginn fyrsta en þá var skundað í

Fréttir

Fjölskyldudagur Lions – sumardagurinn fyrsti

Fjölskyldudagur Lions - sumardaginn fyrsta
Fjölskyldudagur Lions - sumardaginn fyrsta

Mikil gleði var hjá Lionsmönnum, fjölskyldum þeirra og vinum á sumardaginn fyrsta en þá var skundað í Skútudal og fyrsti Fjölskyldudagur Lionsklúbbs Siglufjarðar haldinn.

 

Á síðasta fundi var ákveðið að á sumardeginum fyrsta skildu klúbbmeðlimir, fjölskyldur þeirra og vinir gera eitthvað skemmtilegt saman og þar sem veðrið lék við okkur þá lá best við að leika sér á sleðum og þotum í Skútudal sagði Guðný Kristinsdóttir formaður klúbbsins.
 
Gummi Eggerts mætti galvaskur á vélsleðanum þar sem hann dró mannskapinn upp brekkurnar þegar það hafði rennt sér niður. Dagurinn fór vel fram og hópurinn fór heim með bros á vör eftir vel lukkaða og skemmtilega samveru.

Lionsklúbbur Siglufjarðar óskar öllum gleðilegs sumars

 

Fleiri myndir má sjá hér

 


Athugasemdir

19.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst