Fjölskyldudagur Siglfirðingafélagsins 16. Maí klukkan 13:30
sksiglo.is | Almennt | 29.04.2010 | 13:30 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 317 | Athugasemdir ( )
Siglfirðingafélagið hefur nú starfað í 49 ár og hefur staðið að ýmsum uppátækjum í gegnum tíðina og má þar meðal annars nefna fjölskyldudaginn.
Fjölskyldudagur Siglfirðingafélagsins verður nú haldinn í Grafarvogskirkju sunnudaginn 16. maí klukkan 13:30 en dagurinn hefst með messu. Vinsælt hefur verið hjá Siglfirðingum bæði nær og fjær að sækja fjölskyldudaginn og má því búast við nokkrum fjölda í kirkjuna en þar mun sr. Vigfús messa ásamt Arnfríði Guðmundsdóttur.




Athugasemdir