Fjölskyldudagurinn og Siglfirðingaball á Catalinu.

Fjölskyldudagurinn og Siglfirðingaball á Catalinu. Heilmikið stendur til hjá Siglfirðingum syðra um helgina. Siglfirðingafélagið stendur fyrir hinum

Fréttir

Fjölskyldudagurinn og Siglfirðingaball á Catalinu.

Bílskúrsbandið
Bílskúrsbandið

Heilmikið stendur til hjá Siglfirðingum syðra um helgina. Siglfirðingafélagið stendur fyrir hinum árvissa fjölskyldudegi í Grafarvogskirkju kl. 13.30 þar sem prestarnir Vigfús Þór Árnason og Arnfríður Guðmundsdóttir þjóna. Eftir messu verður svo kaffi þar sem að þessu sinni árgangarnir 1950, ´60 og ´70 verða stjórninni innan handar með framkvæmdina.


 

Eins og tvö síðastliðin ár stendur hópur burtfluttra Siglfirðinga sem búsettir eru á suðvesturhorninu, fyrir Siglfirðingaballi á Catalinu í tengslum við afmælisdag bæjarins og kaffidaginn í Grafarvogskirkju. Árið 2008 var ágæt þátttaka, enn betri 2009 og aðstandendur vonast til að nýtt met verði slegið í ár. Að þessu sinni leika fyrir dansi dúóið Vanir Menn og hið óskírða og nýstofnaða bílskúrsband sem kynnt var til sögunnar hér á síðunni fyrr í vikunni.

Café Catalina mun einnig leggja sitt af mörkum og býður upp á glæsilegan matseðil á alveg einstöku tilboði.
Smjörsteiktur skötuselur með kartöflu, grænmeti og hvítvínssósu   kr. 1.550.-
Nautasteik með bakaðri kartöflu, grænmeti og bernessósu    kr. 1.900.-
Lambasteik með bakaðri kartöflu, grænmeti og sveppasósu    kr. 1.900.-
Sjáfarréttasúpa með nýbökuðu heimagerðu brauði     kr. 1.250.-

Matargestir geta pantað borð í síma 554-2166 en opnað verður inn í danssal kl. 23.00.
Rétt er að taka það fram að aldurstakmark er 20 ár og frítt er inn á ballið.


Athugasemdir

19.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst