Fjórir dagar í fyrsta leik
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 12.05.2009 | 12:00 | | Lestrar 480 | Athugasemdir ( )
Nú eru aðeins fjórir dagar í fyrsta leik hjá m.f. KS-Leiftur, leikið verður gegn Njarðvík á Njarðvíkurvelli en vegna vallaraðstæðna er ekki hægt að spila á heimavelli KS-Leifturs. Æfingaraðstaðan fyrir liðið er vægast sagt döpur, drengirnir hafa æft á sparkvellinum og svo núna vestan megin við Mjölhúsið.
Mjölhúsið væri einmitt físilegur kostur sem knattspyrnuhús að sögn áhugamanna, húsið gæti nýst Dalvík, Leiftri, KS og Tindastól með tilkomu jarðganganna. Það verður spennandi að fylgjast með liðinu í sumar en gefið hefur verið út að uppistaðan í liðinu verði heimamenn og ungu strákarnir munu fá aukna ábyrgð þar.
Myndir HÉR

Athugasemdir