Flestir vilja sambærilegar hækkanir

Flestir vilja sambærilegar hækkanir Mikill meirihluti þeirra sem tóku afstöðu í könnun ASÍ styður þá stefnu að lögð verði áhersla á sambærilegar

Fréttir

Flestir vilja sambærilegar hækkanir

Fréttablaðið/GVA
Fréttablaðið/GVA

Mikill meirihluti þeirra sem tóku afstöðu í könnun ASÍ styður þá stefnu að lögð verði áhersla á sambærilegar launahækkanir fyrir alla í yfirstandandi kjaraviðræðum.
Í könnun, sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir ASÍ, sögðust 94 prósent svarenda hlynnt því að verkalýðshreyfingin legði áherslu á sambærilegar launahækkanir, frekar en að þeir sem starfi í útflutningsgreinum njóti meiri hækkana.

Þá vilja 48 prósent að verkalýðshreyfingin leggi mesta áherslu á að tryggja kaupmátt launa í yfirstandandi kjaraviðræðum, 24 prósent vilja að áherslan sé á að tryggja atvinnuöryggi og 19 prósent beinar launahækkanir.

Úrtak könnunarinnar var 1.200 félagar í stéttarfélögum og var svarhlutfall um 63 prósent.

Nokkur styr hefur staðið um hina svokölluðu samræmdu launastefnu sem ASÍ og SA hafa talað fyrir, en nokkur stéttarfélög hafa dregið samningsumboð sitt til baka og semja upp á eigin spýtur. Viðræður ASÍ og SA héldu áfram í gær og verður fundað á ný í lok vikunnar.


Athugasemdir

14.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst