Fm.trolli.is í stöðugri þróun
sksiglo.is | Almennt | 01.11.2013 | 12:30 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 167 | Athugasemdir ( )
Tilkynning frá Fm.trolli.isNúna er hægt að enduspila þætti sem eru á fm.trolli.is á veraldarvefnum (internetinu).Þónokkuð mikið af þáttum eru í boði og vonandi bætist í með tímanum.Frjálsar hendur Andra. Þáttur sem er alla virka daga frá 13-16.Andri Hrannar hefur frjálsar hendur, leikur óskalög og spjallar við hlustendur. Óskalagasíminn er 477 103.7Orðlaus á fimmtudagskvöld kl.20-22Ægir Bergs, Gulli Stebbi og Halldór Þormar fjalla um og spila eðaltónlist. Stundum fá þeir aðra tónlistarspekúlanta í heimsókn.Eins og nafnið gefur til kynna er þetta ögrandi þáttur þar sem fjórar siðlausar og elskulegar konur ræða málin mjög opinskátt og fá jafnvel hörðustu nagla til að roðna.Siðlausar eru á föstudagskvöldum frá 21-00.Tveir á móti e1num. Laugardagsmorgnar frá kl. 10-12.Þrír þéttir fara yfir helstu mál liðinnar viku, hringja í fólk, fólk hringir inn og leika góða tónlist.Einn sér eða í smærri hópum. Laugardagskvöld Frá kl. 21-23.Steini Píta Sveinsson kemur hlustendum í helgar-gírinn og leikur við hvern sinn fingur, - frábær tónlist og skemmtilegt spjall sem hann á stundum við sjálfan sig og aðrar, þó aðalega við sjálfan sig.Partý-Partý-PartýAndri Hrannar heldur Tröllapartý í beinni, hringir í fólk, tekur við kveðjum í síma 477 103.7, þambar kaffi og leikur óskalög.EvangerDanni Pétur púslar okkur saman eftir helgina. Nýjasta tónlistin í bland við þá bestu, tónlistarfróðleiksmolar, óskalagið þitt og dass af rómantík.Eins og þið hugsanlega gerið ykkur grein fyrir eru margir þættirnir sem snúast um fréttir og málefni um Siglufjörð, Tröllaskaga og nærsveitir. Þannig að núna geti þið farið á netið og hlustað á upptökur.Kv. Tröllapabbi og Tröllabörn
Athugasemdir