Fögur Fjallabyggð
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 26.04.2009 | 20:00 | | Lestrar 780 | Athugasemdir ( )
Loksins, loksins, heyrðist þegar fólk gekk uppí rútuna sem flutti fólk til Ólafsfjarðar.
Fjallabyggð í samvinnu við Metrostav buðu fólki að ferðast í gegnum Héðinsfjarðargöngin. Fjórar stórar rútur voru í ferðum milli byggðakjarnana í Fjallabyggð á klukkustunda fresti og er óhætt að segja að þær hafi verið vel notaðar, auk þess sem fjöldi einkabíla fóru í gegn.
Siglo.is áætlar að rúmlega þúsund manns hafi farið í ferðalag milli bæjarhlutana og áð í Héðinsfirði þar sem nemendur 10. bekkjar Ólafsfjarðar báru fram drykki í boði Vífilsfells. Margir Siglfirðingar nýttu sér frábæra sundlaug á Ólafsfirði, siglo.is heimsótti Náttúrugripasafnið og kaffihlaðborðið á Hótel Brimnes var hreint út sagt frábært. Fjölmargir heimsóttu frumkvöðlasetur Rauðku og höfðu gaman af Ljósmyndasafni Siglufjarðar. Þakka ber Fjallabyggð og Metrostav fyrir frábæran dag.
Fleiri myndir HÉR

Athugasemdir