Forsetinn vill lćkka í launum.

Forsetinn vill lćkka í launum. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, telur eđlilegt ađ laun forseta og annarra ráđamanna verđi lćkkuđ í ljósi

Fréttir

Forsetinn vill lćkka í launum.

Ólafur Ragnar Grímsson.
Ólafur Ragnar Grímsson.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, telur eðlilegt að laun forseta og annarra ráðamanna verði lækkuð í ljósi þeirra aðstæðna sem Íslendingar glíma nú við. Ég mundi fagna slíkri ákvörðun Alþingis eða kjararáðs og tel að hana eigi að taka sem fyrst, segir forsetinn í svari við könnun sem Fréttablaðið gerði meðal alþingismanna, ráðherra, borgarstjóra, hæstaréttardómara og forsetans. Spurt var hvort eðlilegt væri að skerða laun æðstu stjórnmálamanna og embættismanna þjóðarinnar í ljósi þróunarinnar í efnahagsmálum og þá hversu mikið. Spurt var hvort viðkomandi vildi taka á sig sömu skerðingu og aðrir landsmenn. Alls bárust tólf svör. Auk svars forsetans bárust svör frá þremur stjórnarþingmönnum og átta þingmönnum minnihlutans. Verði almenn launaskerðing er sjálfsagt að þingmenn verði fyrir henni jafnt og aðrir," segir Guðbjartur Hannesson úr Samfylkingunni. Kjararáð svarar því ekki hvort kjaraþróun í landinu verði tekin fyrir með launalækkun í huga.- ghs

Athugasemdir

04.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörđur
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgiđ okkur á Facebook eđa Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst