Fótboltadagur á Hóli

Fótboltadagur á Hóli Miðvikudaginn 28. ágúst  verður fótboltadagur á Hóli. Allir krakkar sem æfa hjá KS munu spila fótbolta og skemmta sér.  Eftir það

Fréttir

Fótboltadagur á Hóli

Fótboltadagur
Fótboltadagur

Miðvikudaginn 28. ágúst  verður fótboltadagur á Hóli. Allir krakkar sem æfa hjá KS munu spila fótbolta og skemmta sér.  Eftir það verður boðið uppá pylsur og drykk áður en meistaraflokkur karla tekur á móti KV í 2. deildinni.  Athugið að það eru ekki hefðbundnar æfingar frá 13:00 þennan dag.
Krakkarnir eiga að mæta á eftirfarandi tímum:

17:00             3. og 4. flokkar karla og kvenna.
17:30             5.-6.-7. og 8. flokkarnir.

Leikur KS/Leifturs við KV hefst kl 20:00 og hvetjum við alla til að mæta á leikinn og hvetja strákana okkar til sigurs.

Nú styttist í Pæjumótið og þegar eru hafnar skráningar á vinnu foreldra á mótinu. Félagið getur ekki í augnablikinu lofað að æfingagjöld verða frí í haust, en þeir sem skrá sig í vinnu á Pæjumótinu munu fá sína umbun fyrir.

Foreldrar sem vilja vinna á Allanum í morgun eða kvöldmatnum geta haft samband við Lóu 868-7290 eða Kötu 899-2052 og skráð sig þar. Sjoppan á Hóli er fullmönnuð, en það eru ýmis önnur verk sem þarf að gera og hægt er að hafa samband við Róbert (848-4011) og skrá sig hjá honum.

Dósasöfnun verður fimmtudaginn 29. Júlí  klukkan 18:00 og er skyldumæting hjá iðkendum í 3.-4.-5. og 6. Flokki.
Frí verður  á fótboltaæfingum fimmtudaginn 29., föstudaginn 30. og mánudaginn 02.
Kveðja, stjórn KS.


Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst