Frá Herhúsinu

Frá Herhúsinu Bandaríska listakonan Marianne Dages sýnir teikningar stórar og smáar í sal Herhússins í dag, laugardaginn 26. október kl.15-17

Fréttir

Frá Herhúsinu

Bandaríska listakonan Marianne Dages sýnir teikningar stórar og smáar í sal Herhússins í dag, laugardaginn 26. október kl.15-17

Marianne er frá Fíladelfíu í Pennsylvaníu, hún hefur fengist aðallega við teikningar, prentlist og bókagerð.

Þessi bókargerð sem um ræðir er sjálfstæð listgrein víða um heim og felst í að listamenn vinna bókverk sem byggjast á myndrænni sköpun jafnt sem texta eða leik að orðum.

Hún hefur dvalið í Herhúsinu í októbermánuði og gengið á fjöll og notið verunnar á Siglufirði í hinu góða veðri sem hefur verið inn á milli rigningadropa og snjókorna.

Við Siglfirðingar eigum eina listakonu á þessu sviði sem er hún Brynja Baldursdóttir.

Allir hjartanlega velkomnir.


Athugasemdir

02.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörđur
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgiđ okkur á Facebook eđa Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst