Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir styrkumsóknum

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir styrkumsóknum Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar á

Fréttir

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir styrkumsóknum

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar á ferðamannastöðum fyrir árið 2013. Umsóknarfrestur er til og með 1 mars 2013 og umsóknir sem berast eftir það eru ekki teknar gildar.

Verkefni verða að uppfylla amk. eitt af eftirfarandi skilyrðum:

  1. Verkefnið er til uppbyggingar, viðhalds og verndunar mannvirkja og náttúru á ferðamannastöðum í eigu opinberra aðila eða á náttúruverndarsvæðum.
  2. Verkefnið er til framkvæmda sem varða öryggi ferðamanna og verndun náttúru á ferðamannastöðum í eigu opinberra aðila jafnt sem einkaaðila.
  3. Verkefnið er til undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna framkvæmda á ferðamannastöðum eða á náttúruverndarsvæðum.

 Áherslur og ábendingar til umsækjenda:

  1. Framkvæmdasjóðurinn leggur sérstaka áherslu á verkefni þar sem horft er til heildarmyndar ferðamannastaða og ferðamannaleiða.
  2. Framlög til einkaaðila eru háð því skilyrði að um sé að ræða ferðamannastaði sem eru opnir almenningi.
  3. Að jafnaði getur styrkur ekki numið hærri upphæð en 50% af kostnaði.
  4. Við yfirferð umsókna er tekið mið af gæðum og trúverðugleika umsókna, mikilvægi verkefnis m.t.t. markmiða Framkvæmdasjóðsins og Ferðamálaáætlunar 2011-2020, sjálfbærnisjónarmiða, nýnæmis ofl.
  5. Áherslur Framkvæmdasjóðsins er varða skipulag og hönnun, útlit og gæði mannvirkja og merkinga koma m.a. fram “Menningarstefnu í mannvirkjagerð”, leiðbeiningarritinu „Góðir staðir“ og „Handbók um merkingar á ferðamannastöðum og friðlöndum“ (sjá nánar á umsóknarsíðu).

Allar umsóknir skulu innihalda:

a. Verkefnislýsingu sem lýsir hugmyndinni með rökstuddum og skýrum hætti. 
b. Kostnaðar- og verkáætlun
c. Ef sótt er um styrk fyrir byggingu mannvirkja eða til annarra framkvæmda þá verður deiliskipulag, 
   fullnaðarhönnun og framkvæmdaleyfi að liggja fyrir. 
d. Ef sótt er um styrk til skipulags- og hönnunarvinnu eða undirbúningsrannsókna þá verður að fylgja 
    skriflegt samþykki sveitarstjórnar og/eða skipulagsfulltrúa viðkomandi sveitarfélags.
e. Skriflegt samþykki allra landeigenda og/eða umsjónaraðila

Allar nánari upplýsingar á vefsíðu Ferðamálastofu.


Athugasemdir

27.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst