Framkvæmdir hafnar við byggingu Hótels Sunnu
Í gær var formlega tekin fyrsta skóflan í undirstöður undir Hótel Sunnu sem rísa mun við smábátahöfnina á Siglufirði.
Þetta er stórt verkefni og dugar því ekkert minna en allstór vélskófla til verksins.
Það var engin önnur en Sigríður María Róbertsdóttir framkvæmdastjóri Rauðku ehf sem steig um borð í tækið og tók fyrstu skófluna. Þar með eru framkvæmdir við hótelbygginguna formlega hafnar. Bás hf mun á næstu vikum vinna við uppfyllingu undir hótelið. Stórgrýti er tekið úr grjótnámu sem er út með firðinum og flutt með stórum bílum niður að smábátahöfninni og byggð úr því uppfylling fram í sjóinn, undir hótelið.
Hér er Hótel Sunna eins og hönnuðurinn sér það fyrir sér.
Hér koma svo myndir teknar í gær þegar framkvæmdir hófust formlega.
Við munum fylgjast með framkvæmdunum eftir því sem tilefni gefst til
Myndir og texti: GSH
Athugasemdir