Framsóknarmenn ganga óbundnir til kosninga
sksiglo.is | Almennt | 04.05.2010 | 01:27 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 645 | Athugasemdir ( )
Siglo.is leit inn þegar Framsóknarflokkurinn opnaði kosningaskrifstofu sína á sunnudaginn. Í máli oddvita flokksins, Ingvars Erlingssonar, kom fram að Framsóknarmenn ganga algjörlega óbundnir til kosninga og að frambjóðendur B-listans munu í framhaldi af kosningum meta stöðuna út frá málefnum og vilja kjósenda.
Um 60 manns auk fjölda barna mættu á opnunina en á meðal gesta voru bæði formaður og varaformaður flokksins.







Athugasemdir