Frestað vegna veðurs
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 21.08.2009 | 13:22 | | Lestrar 413 | Athugasemdir ( )
Sjóstangveiðimótinu sem átti að hefjast snemma í morgun hefur verið frestað vegna veðurs.
Mótið átti upphaflega að fara fram þann 24. júlí síðastliðinn, en sökum veðurs var því einnig frestað þá. Við skulum rétt vona að verðrið verði skaplegra á morgun. Þetta er síðasta mót sumarsins og nú fæst úr því skorið hver hlýtur Íslandsmeistaratitilinn. Staðan er hnífjöfn sem stendur og skilur aðeins 1 stig á milli fyrsta og annars manns. Sá sem er með flest stig fyrir mótið er Baldvin S. Baldvinsson frá Akureyri, en annar er heimamaðurinn Þorsteinn Jóhannesson. Keppendur í mótinu eru 50, og bátar eru 14.
Gert er ráð fyrir að hefja veiðar kl. 5 næstu nótt, en þá er vonast til að veður og sjólag hafi batnað.

Athugasemdir