Fréttatilkynning - umferðarkönnun

Fréttatilkynning - umferðarkönnun Háskólinn á Akureyri, í samvinnu við Vegagerðina, mun standa fyrir umferðarkönnun á Ólafsfjarðarvegi, milli Dalvíkur og

Fréttir

Fréttatilkynning - umferðarkönnun

Tröllaskagi
Tröllaskagi
Háskólinn á Akureyri, í samvinnu við Vegagerðina, mun standa fyrir umferðarkönnun á Ólafsfjarðarvegi, milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar og á Siglufjarðarvegi við Ketilás, fimmtudaginn 29. október og laugardaginn 31. október n.k. Könnunin stendur yfir frá kl. 08:00 – 23:00 báða dagana.


Tilgangur með könnuninni er að kanna umferðarmynstur á utanverðum Tröllaskaga yfir sumartímann og öðlast þekkingu á ferðavenjum einstaklinga á svæðinu Einnig fást upplýsingar um umferð á milli einstakra staða og landsvæða, sem síðar gætu nýst við almenna áætlanagerð. Um er að ræða hluta af rannsóknarverkefni um áhrif Héðinsfjarðarganga á samfélag og byggð.

Framkvæmd umferðarkönnunarinnar verður með þeim hætti að allar bifreiðir, sem koma að könnunarstað, verða stöðvaðar og bílstjórar spurðir nokkurra spurninga.

Vonast er til að vegfarendur, sem leið eiga um könnunarstaðina, taki starfsmönnum Háskólans vel og jafnframt er beðist velvirðingar á töfum sem kunna að hljótast af þessum sökum.

Athugasemdir

24.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst