Frumflutningur á verki eftir Rúnu Ingimundar
Á tónleikum Hlífar Sigurjónsdóttur fiðluleikara í Húsavíkurkirkju sunnudaginn 3. febrúar verður frumflutt
tónverkið Að heiman eftir tónskáldið og Húsvíkinginn Rúnu Ingimundar.
Efniviður tónverksins er fenginn úr fimm þjóð- og kvæðalögum sem voru meðal þeirra fjölda laga sem langa-langafi Rúnu, Benedikt
Jónsson á Auðnum skráði og birtust í þjóðlagasafni séra Bjarna Þorsteinssonar á Siglufirði sem kom út 1909.
Rúna segir: "Það er alltaf spennandi þegar maður heyrir verkið sitt flutt í fyrsta sinn... Ég fer á staðinn og hlakka til að heyra barnið mitt syngja í fyrsta sinn :) Það er aldrei að vita nema einhverjir Siglfirðingar hafi áhuga á því að koma á þessa tónleika".
Að öðrum ólöstuðum má telja að Benedikt á Auðnum (1846 - 1939) hafi átt stærstan þátt í þeim uppgangi
tónlistariðkunar sem varð í Suður Þingeyjarsýslu á síðari hluta 19. aldar og náði langt fram á liðna öld. Hann
skráði á annað hundrað þjóðlaga sem hann sendi séra Bjarna og hann útvegaði sýslungum sínum hljóðfæri,
nótur og annan fylgibúnað erlendis frá. Sjálfur lék hann á flautu og hvatti menn til dáða.
Þessir tónleikar eru þeir þriðju af sex í tónleikaröð Hlífar til að minnast og heiðra fiðlu- og tónmenningu
S-Þingeyinga. Önnur verk sem flutt verða eru Sónata nr. 2 í a moll eftir Johann Sebastian Bach, Söngur, kafli úr sónötu eftir
bandaríska tónskáldið Merrill Clark - þar er einnig um frumflutning að ræða - og Sónötu nr. 3 - "Ballade" eftir fiðlusnillinginn
Eugène Ysaÿe. Tónleikarnir hefjast klukkan 15:30.
Guðrún Ingimundardóttir (Rúna Ingimundar) er fædd á Húsavík og ólst þar upp við söng og hljóðfæraleik,
leiklist og dans. Hún nam söng, píanóleik og síðar flautuleik við Tónlistarskólana á Húsavík og Akureyri. Eftir
stúdentspróf hóf hún nám á tónfræðibraut Tónlistarskólans í Reykjavík og útskrifaðist vorið 1987.
Hún lauk meistaragráðu í tónsmíðum og tónfræði frá Háskólanum í Arizona vorið 1990 og
doktorsgráðu í tónsmíðum og tónlistarmannfræði frá sama háskóla vorið 2009. Hún býr á
Siglufirði, er tónlistarkennari og kórstjóri við Tónskóla Fjallabyggðar og hefur jafnframt verið leiðbeinandi nemenda í
meistaranámi við Listaháskóla Íslands og Háskólann á Bifröst. Rúna hefur mikinn áhuga á íslenskri
þjóðlagatónlist og kvæðamennsku og leitar oft í þjóðlagaarfinn eftir innblæstri í tónsmíðar sínar.
Hún stóð fyrir stofnun Kvæðamannafélags í Fjallabyggð og stýrði fyrsta Landsmóti Kvæðamanna sem haldið var á
Siglufirði í mars 2012.
Að heiman samið sérstaklega fyrir þessa tónleikaröð og byggir á fimm þjóð- og kvæðalögum sem Benedikt á
Auðnum skráði: Fram á regin fjallaslóð, Maðurinn sem úti er, Skelfur undir elfa og grund, Sumarið þegar setur
blítt og Senn er komið sólarlag. Lögin eru kynnt til sögunnar í sinni einföldu mynd og síðan er spunnið út frá hverju
lagi - þjóðlagið, fullkomið í sínum einfaldleika, er stofn trésins og spuninn eru greinarnar. Allt tónmálið er byggt á stofninum
rétt eins og hljóðheimur tónskáldsins sem hvílir á hljómi uppvaxtaráranna á Húsavík.
Hlíf Sigurjónsdóttir er fædd í Kaupmannahöfn en ólst upp í Reykjavík. Hún kom fyrst opinberlega fram 11 ára gömul
er hún lék einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún nam fiðluleik hjá Birni Ólafssyni konsertmeistara við
Tónlistarskólann í Reykjavík og fór síðar til framhaldsnáms við Háskólana í Indiana og Toronto og Listaskólann
í Banff og nam einnig hjá Gerald Beal fiðluleikara í New York borg. Á námsárum sínum kynntist hún og vann með mörgum merkustu
tónlistarmönnum tuttugustu aldarinnar, þar á meðal William Primrose, Zoltan Szekely, György Sebök, Rucciero Ricci og Igor Oistrach. Hlíf hefur haldið
fjölda einleikstónleika og leikið með sinfóníuhljómsveitum og kammersveitum víða um Evrópu, í Bandaríkjunum og Kanada.
Hún hefur frumflutt mörg tónverk sem samin hafa verið sérstaklega fyrir hana. Hlíf hefur leikið inn á upptökur fyrir útvarp og
sjónvarp og nokkra geisladiska við frábæran orðstír, þar á meðal allar partítur og sónötur fyrir einleiksfiðlu eftir J.S.
Bach.
Nýr geisladiskur Duo Landon, hennar og Martin Frewer, með íslenskri tónlist hlaut fimm stjörnur Tónlistargagnrýnanda Morgunblaðsins og gaf sá
diskur, að hans mati, ekki eftir fyrri diski dúósins frá 2005, sem einnig hlaut fimm stjörnur með orðunum „Þjóðleg innlifun á
heimsmælikvarða". Hún hlaut sex mánaða starfslaun listamanna árið 2012.
Frekari upplýsingar gefur Hlíf Sigurjónsdóttir í síma
863 6805 • www.HlifSigurjons.is • HlifSigurjons@HlifSigurjons.is
Hér má nálgast bækling um tónleikana, texta um tónleikana,
tónskáldin og allar efnisskrár
Athugasemdir