Fyrsta landsmót kvæðamanna - Siglufirði 1. - 3. mars
Kvæðamannamótið 2013 verður hið fyrsta Landsmót kvæðamanna.
Föstudagskvöldið 1. mars mun hinn heimsþekkti kvæðamaður Steindór Andersen halda tónleika í Rauðku á Siglufirði.
Á laugardeginum verður Steindór með rímnalaganámskeið, en einnig verður boðið upp á námskeið um bragfræði,
vísnagerð og tvísöngva. Hápunktur mótins verður glæsilegur kvöldverður og kvöldvaka þar sem kvæðamenn og
kvæðakonur "kveða í kútinn."
Mikilvægur þáttur í þessu fyrsta Landsmóti kvæðamanna er að stofna Landssamtök kvæðamanna til að styrkja kvæðamannafélögin og gera kvæðamennskuna að lifandi tónlistarhefð.
Athugasemdir