Gamli slökkvibíllinn á ferð
sksiglo.is | Almennt | 25.06.2010 | 08:55 | Síldarminjasafnið | Lestrar 460 | Athugasemdir ( )
Gamli sévrolett-trukkurinn frá 1943 brunaði um götur bæjarins á þriðjudaginn – en með öðrum hætti en áður þegar hann boðaði með lúðrablæstri eldsvoða og skaut öllum siglfirskum börnum skelk í bringu – og á miðri Túngötunni varð að nema staðar því grár reykjarmökkur sé upp af bremsubúnaðinum og tóku leiðangursmenn sér hvíld meðan græjurnar kólnuðu.
Það rifjaðist upp að þetta væri ekki í fyrsta sinn sem slíkt henti en á árum áður varð í miðju útkalli að taka góða pásu á Suðurgötunni því gleymst hafði að taka handbremsurnar af. Ýmsu vanur sá gamli! Það dreif að menn til að skoða gripinn og á myndinni eru þeir Ámundi slökkviliðsstjóri, Gunni Júl dráttarbílstjóri, Steingrímur Kristins og Siggi Ægis sem greinilega var mættur til að skoða þessa furðufugla og „leggja blessun sína“ yfir athöfnina. Aftan á brunabílnum stendur Guðni Brynjar.
Trukkurinn gamli má muna sinn fífil fegurri en síðustu árin hefur hann verðið geymdur í gámi rúinn öllum sínum fyrri búnaði og skrauti. Framvegis verður hann staðsettur í áhaldahúsi bæjarins og eru þeir sem áhuga hafa á endurgerð hans í þágu Fjallbyggðinga beðnir um að hafa samband við Ámunda Gunnarsson. -ök

Athugasemdir