Myndlistarsýning Bergþórs og Paul.

Myndlistarsýning Bergþórs og Paul. Föstudaginn 29. Júlí opnar samsýning myndlistar-mannanna Bergþórs Morthens og Paul Lajeunesse í Gallerí Rauðku.

Fréttir

Myndlistarsýning Bergþórs og Paul.

Myndlistarsýning
Myndlistarsýning
Föstudaginn 29. Júlí opnar samsýning myndlistar-mannanna Bergþórs Morthens og Paul Lajeunesse í Gallerí Rauðku. Sýningin opnar kl.16:00 og opið verður yfir Síldarævintýrishelgina og eitthvað fram í ágúst.

Bergþór Morthens útskrifaðist frá Myndlistaskólanum á Akureyri árið 2004 og flutti þá til Siglufjarðar, hann hefur síðan unnið ötullega að list sinni og haldið bæði einka- og samsýningar jafnt hér á landi sem erlendis.

Paul Lajeunesse er mörgum siglfirðingum að góðu kunnur en hann er bandarískur myndlistamaður sem dvaldi á Íslandi sem gestalistamaður Sambands íslenskra myndlistamanna (SÍM) og í Herhúsinu á Siglufirði árin 2007 til 2008.

Þeir félagar hafa verið í góðu sambandi síðan að Paul hélt til Bandaríkjanna og hafa lengi ætlað sér að sýna aftur saman á Siglufirði. Það er nú komið að því og ekki amalegt að sýna á jafn fjölmennri hátíð sem Síldarævintýrið er og í eins skemmtilegu umhverfi og Gallerí rauðka er.

Áhugaverð Sýning sem siglfirðingar og gestir bæjarins ættu ekki að láta framhjá sér fara. 

Texti og mynd: Aðsend


Athugasemdir

08.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst