Garpamót SSÍ í sundi
sksiglo.is | Almennt | 07.05.2010 | 00:00 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 625 | Athugasemdir ( )
Þann 1. maí síðastliðinn skipulagði Sundsamband Íslands (SSÍ) garpamót á Siglufirði. Um 60 garpar kepptu í mótinu sem var hið skemmtilegasta.
Siv Friðleifsdóttir var að sjálfsögðu á svæðinu og gaf Siglo.is færi á að birta myndir af síðu sinni. Keppt var í skriðsundi, flugsundi, bringusundi, baksundi, fjórsundi og svo að sjálfsögðu boðsundi í öllum greinum. Að loknu vel heppnuðu móti var að sjálfsögðu slegið til lokahófs á Allanum þar sem keppendur uppskáru árangur erfiðisins.






Athugasemdir