Gengið um Búrfell og Búrfellsgjá

Gengið um Búrfell og Búrfellsgjá Í gær laugardaginn 23. maí gekkst Siglfirðingafélagið fyrir gönguferð í Búrfellsgjá í Heiðmörk. Gengið var frá Hjallaenda

Fréttir

Gengið um Búrfell og Búrfellsgjá

Í gær laugardaginn 23. maí gekkst Siglfirðingafélagið fyrir gönguferð í Búrfellsgjá í Heiðmörk. Gengið var frá Hjallaenda og upp að eldstöðinni sem talið er að sé u.þ.b. 7000 ára gömul. 

Gönguleiðin hentar flestum mjög vel því farið er eftir ágætum stígum og er hækkun óveruleg.

Mæting var ágæt eða lítillega á fjórða tuginn, veður hélst bjart og þurrt þrátt fyrir að veðurspá gæfi annað til kynna og ferðin því í alla staði mjög vel heppnuð.

Leiðsögumaður var Jóhannes Sveinbjörnsson frá Hofsstöðum í Garðabæ og þekkti hann greinilega vel til á þessum slóðum.   Myndir HÉR
LRÓ.


Athugasemdir

21.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst