17. júní
Bergþór Morthens | Almennt | 19.06.2010 | 07:00 | Bergþór Morthens | Lestrar 555 | Athugasemdir ( )
Fjöldi fólks naut veðurblíðunnar og fagnaði þjóðhátíðardeginum í miðbæmum í gær. Það gátu allir fundið eitthvað við sitt hæfi en fyrst og fremst var fólk saman komið til þess að halda daginn hátíðlegan.
Hópur fólks gekk í skrúðgöngu frá kirkjunni að Hvanneyri þar sem nýstúdentar
leggja blómsveig að leiði sr. Bjarna Þorsteinssonar og Sigríðar Blöndal.
Þá fylgdust margir með hátíðarræðu, ávarpi Fjallkonu og tónlistaratriðum í miðbænum. Börnin skemmtu sér á trampolíni og með sippubönd.
Margir fengu blöðrur og sælgæti og upplifðu sannkallaða þjóðhátíðarstemmingu. Veðrið var ekki af verri endanum, sól og hlýtt í veðri.
Að dagskrá lokinni á Torginu var haldið á Gervigrasvöllinn á Skólabalanum þar sem
hinn árlegi kappleikur 7. flokks KS, Norðurbær – Suðurbær, fór fram.
Leikgleðin skein úr andlitum keppenda og flottir taktar sem krakkarnir sýndu á knattspyrnuvellinum.
Að leik loknum fór fram óopinber landsleikur Íslands og Englands en þar léku ,,Oldboys“ á móti þjálfarateymi Bolton Akademíunar.
Frábær dagur og góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Fleiri myndir hér

Athugasemdir