„Fornbátur“ smíðaður í Slippnum

„Fornbátur“ smíðaður í Slippnum Nú, seinnihluta sumars og fram á haust, er unnið að smíði fyrsta tilgátu-árabátsins á Íslandi. Það er Hjalti Hafþórsson

Fréttir

„Fornbátur“ smíðaður í Slippnum

Myndin sýnir Hjalta og föður hans Hafþór Rósmundsson við bátinn „nýforna“.
Myndin sýnir Hjalta og föður hans Hafþór Rósmundsson við bátinn „nýforna“.
Nú, seinnihluta sumars og fram á haust, er unnið að smíði fyrsta tilgátu-árabátsins á Íslandi. Það er Hjalti Hafþórsson sem annast smíðina eftir að hafa rannsakað leifar báts sem fundust við uppgröft í Vatnsdal í Patreksfirði fyrir nærri 50 árum.

Kumlið er talið vera frá 10. öld og var staðsetning alls bátasaums (nagla) mæld nákvæmlega af fornleifafræðingum. Verkefnið nýtur styrkja og stuðnings frá menntamálaráðuneytinu og Síldarminjasafninu.
                                                                                                                                                     
Það er mjög áhugavert að fylgjast með hvernig verkinu vindur fram og er opið hús í Slippnum alla daga sem þar er unnið – og allir boðnir velkomnir.



Texti og forsíðumynd: http://www.sild.is/
Mynd: GJS



Athugasemdir

17.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst