“Lýðveldið á planinu”
sksiglo.is | Almennt | 29.07.2010 | 08:55 | Síldarminjasafnið | Lestrar 346 | Athugasemdir ( )
Í dag kl. 17:00 verður opnuð listasýningin “Lýðveldið á planinu” í Gallerí Gránu. Sýningin samanstendur af fjölbreyttum verkum listakvenna sem sýnt hafa verk sín víðsvegar um landið. En verkin tengjast hugmyndum um íslenska lýðveldið. Í gær unnu þær hörðum höndum á Gránuloftinu við að koma upp sýningunni, en þar má finna málverk, skúlptúra, myndskyggnur, ljósmyndir og draumagildrur fyrir martraðir Íslendinga svo eitthvað sé nefnt.
Í tilefni af sýningunni í Gránu verður sýnd listræn heimildamynd frá ferðum tveggja listakvennanna um slóðir afkomenda vesturfaranna í Manitobafylki í Kanada og Norður-Dakóta.
Bæjarbúar sem og aðrir gestir eru hvattir til að mæta á opnunina í dag þar sem boðið verður upp á léttar veitingar í tilefni dagsins.

Athugasemdir