Á sjóinn með Reyni Karls og Gabríel Reynis
sksiglo.is | Almennt | 26.10.2013 | 06:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 776 | Athugasemdir ( )
Ég hafði samband við Reyni Karls og bað hann um að senda mér myndir frá sjónum.
Ég veit að Reynir er duglegur með myndavélina út á sjó og það var eins og flest annað hjá Reyni, það var
ekkert vandamál að fá sendar myndir af þessum sjógörpum og því sem þeir þurfa að glíma við á
sjónum.
Við förum í 2 róðra með Reyni og Gabríel og myndir úr fyrri róðrinum birtast hér.
Þessar myndir eru teknar um borð í Jonna SI í róðri þann 16.10.2013. Farið var á Skagagrunn og fiskaðist vel, 6,6
tonn.
Reynir er skipstjóri og þrælgóði hásetinn er Gabríel.
Þessi sem þið sjáið í gulum vinnubuxum er Svissneskur ferðalangur. Ég ætla bara að láta útskýringu á honum koma óbreytt
frá Reyni Karls.
Svar Reynis þegar ég spurði hann hver þessi
í gulu buxunum væri.
"Þetta er Svissneskur ferðalangur sem
langaði alveg ógurlega að koma með í róður:) Magnaður tappi,,,,,,drullubræla og þá bara kveikti minn maður sér í
sígarettu, ekkert sjóveikur.
Ég var alveg kjaftstopp.Djöflaðist með okkur
í öllu,blóðgaði eins og þrælvanur og vann öll störf um borð eins og hann hafi aldrei gert annað.
Svo bara tók hann í hendina á okkur og
þakkaði fyrir sig.Sagðist ekki geta beðið eftir því að sjá svipinn á vinum sínum úti,er hann sýndi þeim allar
þær myndir sem hann tók.
Algjör ævintýragæji,25 ára gamall.Gistir
í tjaldi!Að vísu,þar sem leiðinlegt veður var þá splæsti hann í gistingu á Siglunes, gistiheimilinu.
Þeir eru nú ekki margir sem hafa komið mér jafn
mikið á óvart:)
Kv.Reynir"
Við þökkum Reyni og
Gabríel kærlega fyrir þessar myndir og svo kemur meira af myndum frá þeim á morgun.
Gabríel Reynisson með einn vænan.
Reynir Karlsson skipstjóri
bíður eftir því að sá guli komi upp.
Hér eru Gabríel og
Svisslendingurinn hugaði.
Gabríel
Blankalogn
Af einhverjum ástæðum fannst
Reyni algjörlega nauðsynlegt að senda mér myndir af þessum vinnuvetlingum. Líklega hefur það eitthvað með það sem stendur á
þeim að gera, þ.e.a.s. COYS. Líklega er þetta einhvur fótbolta tengd skammstöfun. En ég veit að Reynir heldur með einhverju
fótboltaliði einhverstaðar í útlöndum.


Athugasemdir