Allinn skartar sínu fegursta
sksiglo.is | Almennt | 15.07.2010 | 09:30 | Bergþór Morthens | Lestrar 554 | Athugasemdir ( )
Allinn skartar núna sínu fegursta eftir töluverðar endurbætur. Vel var að verkinu staðið og er húsið glæsilegt á að líta og til mikillar prýði.
Allinn sem staðsettur er í sögufrægu húsi í miðbæ Siglufjarðar var farinn að láta verulega á sjá. Fyrr í sumar var farið í steypuviðgerðir á húsinu og nú er búið að mála húsið og er útkoman glæsileg.
Þessi framkvæmd setur mikinn svip á húsið og miðbæinn í heild sinni. Til stendur hjá fleiri aðilum í miðbænum að mála húsin sín þannig að heildarsvipur miðbæjarins verður allt annar og betri.
Allar svona framkvæmdir hjálpa til við að gera bæinn okkar meira aðlaðandi og eru þetta svo sannarlega góðar fréttir.
Málararnir eru nú á fullu og nýta tækifærið á meðan að ekki rignir og eru byrjaðir að mála bakaríið.
Það er greinilegt að Siglfirðingar eru í framkvæmdahug og spennandi verður að fylgjast með þróun mála í bænum.

Húsið sem bakaríð er staðsett í er glæsilegt hús sem á eftir að njóta sín enn betur þegar búið er að mála það.

Athugasemdir