Áreiðanlegustu mælarnir þróaðir hér á landi

Áreiðanlegustu mælarnir þróaðir hér á landi Veðurstofan og Vegagerðin reka níu SM4 snjódýptarmæla í fjallshlíðum í grennd við Bolungarvík, Ísafjörð,

Fréttir

Áreiðanlegustu mælarnir þróaðir hér á landi

SM4 hitamælistafur frá POLS Engineering sem rekinn er af norsku vegagerðinni í um 1240 m h.y.s. við Mohaugen í Mið-Noregi.
SM4 hitamælistafur frá POLS Engineering sem rekinn er af norsku vegagerðinni í um 1240 m h.y.s. við Mohaugen í Mið-Noregi.
Veðurstofan og Vegagerðin reka níu SM4 snjódýptarmæla í fjallshlíðum í grennd við Bolungarvík, Ísafjörð, Siglufjörð, Ólafsfjörð, Seyðisfjörð og Neskaupstað og í Súðavíkurhlíð.

Norska vegagerðin hefur jafnframt sett upp þrettán mæla og tveir mælar eru reknir í Svíþjóð.


Mælar þessir eru þróaðir af  Erni Ingólfssyni hjá fyrirtækinu POLS Engineering á Ísafirði í samstarfi við Veðurstofuna.

Mælirinn, sem nefnist SM4, mælir hita með 20 cm bili í snjóþekjunni og lofti næst ofan hennar, alls 320 cm langt lóðrétt hitasnið.

Unnt er að meta snjódýpt með því að greina sveiflur hitanemanna með tíma. Hiti mældur af þeim nemum sem eru á kafi í snjó breytist hægar en hiti nemanna sem loft leikur um.

Mælarnir hafa reynst áreiðanlegasta mælitæki sem völ er á til þess að mæla snjódýpt á upptakasvæðum snjóflóða hér á landi. Aðstæður á upptakasvæðunum eru erfiðar til þess að reka aðrar tegundir mælitækja vegna hvassviðris, ísingar og örðugleika á því að framleiða nægt rafmagn til þess að reka nema og fjarskiptabúnað.

Á vefsíðu SM4 mælanna, Snowsense, er unnt að skoða niðurstöður mælanna, bæði einstök hitasnið og mat á snjódýpt á mismunandi tímum. Niðurstöður norsku og sænsku mælanna er einnig hægt að skoða á vefsíðunni.

Meiri upplýsingar um þennan mæli á ensku má finna hér

Athugasemdir

21.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst