ÁTVR á Sigló
sksiglo.is | Almennt | 14.08.2013 | 12:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 834 | Athugasemdir ( )
Rétt fyrir verslunarmannahelgina bað ég hana Ólöfu mína að
kíkja í ÁTVR og taka nokkrar myndir af starfsmönnum og vöruúrvalinu sem þar er, sem er vægast sagt alveg hreint ljómandi gott.
Eins og gefur að skilja var mikið að gera hjá starfsstúlkunum við að
raða allskonar vörum í hillur og rekka fyrir þyrsta ferðamenn og bæjarbúa sem margir hverjir voru á síðasta snúningi með innkaup
fyrir helgina.
Þess má geta að ÁTVR á Siglufirði var valin Vínbúð
Ársins 2013. Þess má líka geta að árið 2011 fékk ÁTVR á Siglufirði einnig þessa viðurkenningu. Enda er það ekki
skrítið, þar er persónuleg og góð þjónusta.





Athugasemdir