Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2011

Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2011 Menningarnefnd Fjallabyggðar auglýsir eftir umsóknum og / eða rökstuddum ábendingum um bæjarlistamann Fjallabyggðar

Fréttir

Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2011

Bergþór Morthens bæjarlistamaður 2010  t.v. og Þórarinn Hannesson.       Mynd fengin af vef Siglo.is
Bergþór Morthens bæjarlistamaður 2010 t.v. og Þórarinn Hannesson. Mynd fengin af vef Siglo.is

Menningarnefnd Fjallabyggðar auglýsir eftir umsóknum og / eða rökstuddum ábendingum um bæjarlistamann Fjallabyggðar 2011.

Nafnbótin bæjarlistamaður getur hlotnast einstökum listamönnum eða kórum og leikfélögum.


Markmiðið með því að tilnefna bæjarlistamann ár hvert er að hvetja og auka áhuga á listsköpun og bæta menningarlíf íbúa.

Um leið er það viðurkenning bæjaryfirvalda að sköpun og list skipti samfélagið máli.
Slík nafnbót er auglýsing á listamanninum og listamanninum og sveitarfélaginu.
Styrkur til bæjarlistamanns 2011 nemur kr. 150.000 til einstaklings og kr. 250.000 til hóps.

Umsóknir skulu berast fyrir 2. febrúar 2011 til Karitasar Skarphéðinsdóttur Neff, fræðslu- og menningarfulltrúa, Ólafsvegi 4, 625, Ólafsfirði, sími 464 9200.

Reglur um tilnefningu bæjarlistamanns má finna á heimasíðu Fjallabyggðar og eru listamenn hvattir til að kynna sér þær.


Athugasemdir

14.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst