Siglfirsk síldarsaga á erlendri grundu.

Siglfirsk síldarsaga á erlendri grundu. „Bókin Saga úr síldarfirði og vatnslitamyndir úr bókinni eru nú til sýnis á Norrænu strandmenningarhátíðinni

Fréttir

Siglfirsk síldarsaga á erlendri grundu.

Frá sýningunni í Ebeltoft
Frá sýningunni í Ebeltoft

„Bókin Saga úr síldarfirði og vatnslitamyndir úr bókinni eru nú til sýnis á Norrænu strandmenningarhátíðinni "Nordisk kystkulturstævne 2012"  í Ebeltoft í Danmörku. www.ebeltoft2012.dk  Bæði bókin og listsýningin hafa fengið ómælda athygli og lof hátíðargesta.

Að hátíð lokinni verður sýningin send til Karlaskorna í Svíþjóð þar sem hún verður til sýnis á norrrænu strandmenningarhátinni sem haldin verður þar dagana 1.- 7. júlí 2013.

Það er samróma álit fulltrúa norrænu strandmenningarsamtakanna að bókina verði að þýða á aðra norræna tungu þar sem hún hefur að geyma einstaka og mikilvæga heimild um þátt norrænnar strandmenningar“.Þetta skrifar Sigurbjörg Árnadóttir formaður Íslenska vita- og strandmenningarfélagsins, en félagið annaðist þátttöku á hátíðinni fyrir Íslands hönd.

Meðal annars var framlag þess umrædd sýning á myndunum og bók Síldarminjasafnsins. Þess má geta að bókin var kynnt á Bókamessunni miklu í Frankfurt í fyrra og fleiri erlendum bókakynningum. Þá er fyrirhugað að sýningin fari til Vestmannaeyja haustið 2013.



Heimasíða: http://sild.is/



Athugasemdir

17.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst