Bókasafnsdagurinn!
sksiglo.is | Almennt | 17.04.2012 | 13:50 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 161 | Athugasemdir ( )
Bókasafnsdagurinn er haldinn öðru sinni þriðjudaginn 17. apríl 2012. Slagorð dagsins í ár verður "Lestur er bestur".
Markmið dagsins er að vekja athygli á öllu því góða starfi sem unnið er á bókasöfnunum og mikilvægi bókasafna.
Á Bókasafni Fjallabyggðar á Siglufirði er "allt að gerast" þar sem
endurskipulagning hefur farið fram og skráningu safnkosts útlána í
Gegni, sem er rafræn samskrá bókasafna, er að ljúka.
Í tilefni Bókasafnsdagsins erum við með könnun í gangi á því hver er uppáhaldsbók safngesta og tökum vel á móti gestum okkar því allir eiga að vera velkomnir á Bókasafn Fjallabyggðar og þangað á að vera gott að koma.
Nokkrir bekkir grunnskólans heimsækja bókasafnið í dag og í kvöld verður prjónakvöld en slík kvöld hafa verið haldin tvisvar í mánuði í vetur og verið vel sótt og ánægjuleg. Allir eru að sjálfsögðu velkomnir á prjónakvöldin og ekki er nauðsyn að hafa prjónana meðferðis.

Markmið dagsins er að vekja athygli á öllu því góða starfi sem unnið er á bókasöfnunum og mikilvægi bókasafna.
Í tilefni Bókasafnsdagsins erum við með könnun í gangi á því hver er uppáhaldsbók safngesta og tökum vel á móti gestum okkar því allir eiga að vera velkomnir á Bókasafn Fjallabyggðar og þangað á að vera gott að koma.
Nokkrir bekkir grunnskólans heimsækja bókasafnið í dag og í kvöld verður prjónakvöld en slík kvöld hafa verið haldin tvisvar í mánuði í vetur og verið vel sótt og ánægjuleg. Allir eru að sjálfsögðu velkomnir á prjónakvöldin og ekki er nauðsyn að hafa prjónana meðferðis.

Með bókasafnskveðju!
Rósa Bjarnadóttir
Rósa Bjarnadóttir
Athugasemdir